Fullt um að vera í Apríl!!
Strákarnir í DIMMU eru soddan hörkutól að þeir ætla að halda tónleika í Reykjavík, Akureyri og Akranesi í Aprílmánuði.
Ekki nóg með þetta heldur skutust drengirnir til Ísafjarðar síðasta sunnudag, spiluðu þar og vöktu mikla lukku.
Dagskráin í apríl er sumsé eftirfarandi:
Laugardagskvöldið 15.Apríl spilar DIMMA asamt Noise á Grand Rokk.
Giggið hefst um miðnætti.
Föstudagskvöldið 21.Apríl er það Breiðin uppá Skaga. kl 20:00
Þar verður DIMMA ásamt Nevolution, Modern day majesty og Burn Off.
Það kostar 800 kall inn
Föstudagskvöldið 28.Apríl mætir DIMMA loksins á svæðið á Akureyri og verður í svakalegum rokkfílíng í Húsinu (Rosenborg) kl. 20:00
sem og: Nevolution, Modern Day Majesty og Morðingjarnir.
Kostar 800 kall þar líka.
Þetta verða án efa alveg svakalega frábærir tónleikar allt saman og mælum við Grúppíur með því að fólk nýti tækifærið og mæti á svæðið!! Sérstaklega ef þið hafið aldrei séð DIMMU á sviði, þeir klikka ALDREI!
Á sama tíma og við kynnum dagskrá DIMMU í apríl með mikilli gleði þá viljum við Grúppíur nýta tækifærið og kveðja ykkur með mikilli sorg í hjarta.
Við höfum tekið þá erfiðu ákvörðun að hætta með þessa Grúppíusíðu.
Ástæðan er einfaldlega sú að aðstæður hafa breyst og finnst okkur við ekki geta sinnt síðunni og ykkur öllum eins og þörf er á.
Við höfum lagt mikla vinnu í þessa síðu og erum stoltar af henni sem og Grúppíutitlinum okkar, sem við munum engan veginn leggja á hilluna!
Við erum og munum alltaf verða DIMMU grúppíurnar. Okkur finnst DIMMA ÆÐI!
Við þökkum stuðninginn og samfylgdina og bendum ykkur á að kíkja á My space síðuna hjá DIMMU til að fá upplýsingar um gigg í framtíðinni.
Með Rokk Kveðju
Grúppíurnar.





























